_


 

BLINDSKER

Blindsker er heimildamynd um Bubba Morthens eftir Ólaf Jóhannesson og heitir eftir einu laga söngvaskáldsins. Ungur drengur elst upp við mikla fátækt, á alkóhólista fyrir föður, er útskúfaður úr skólakerfinu, leiðist út í glæpi og verður snemma eiturlyfjaneytandi. En til þessarar ógæfusálar kasta máttarvöldin björgunarlínu í formi merkilegrar tónlistargáfu.

Bubbi sprengdi upp hindranir og undirbjó jarðveginn fyrir óhrædda tónlistarmenn en það gerðist ekki án fórna. Hin gríðarlega togstreita í sál frumkvöðulsins Bubba Morthens gekk öfgaleiðir í allar áttir. Ofsafengin eiturlyfjaneysla barði drenginn úr Vogahverfinu nær til ólífis og það þykir kraftaverki líkast að hann skuli enn vera á lífi.
Í dag þykir Bubbi öllu mildari en áður. Er miðaldra, hallærislegur, að sumum finnst, sáttur, virtur, áhrifamikill einstaklingur í samfélaginu, heldur forvarnarræður, syngur um hvað lífið sé dásamlegt og er skítsama hvað öðrum finnst um það. Hann hefur misst tugi vina í eiturlyf, morð, sjálfsmorð – veit því manna best hvað hamingjan er.

Heimildarmyndin Blindsker fjallar um atómbombuna Bubba Morthens sem fór jafnt til nokkurra helvíta sem himna og lifði það af.

 

UPPTÖKUDAGBÓK
16. Okótber 2004 Blindsker • Saga Bubba Morthens • Blindsker • Saga Bubba Morthens var frumsýnd föstudaginn 8. október síðastliðinn. Myndin hefur fengið fádæma góðar viðtökur áhorfenda og gagnrýnenda. Undirritaður, Ragnar Santos, Ólafur Páll Gunnarsson, Benedikt Jóhannesson og auðvitað Bubbi sjálfur, þökkum þessi góðu viðbrögð. Það er von mín að með þessari mynd hafi skapast gott fordæmi fyrir þá kvikmyndagerðarmenn sem hyggjast sýna myndir sínar á þessum vettvangi.


8. Okótber 2004
Blindsker • Saga Bubba Morthens • Jæja, jæja. Frumsýning!
20. Ágúst 2004 Blindsker • Saga Bubba Morthens • Lokatökur fóru fram í Bubba í dag. Það var Markús Örn Antonsson og Bogi Ágústsson sem brugðu sér í leikarahlutverk. Hlutverkin voru þó ekki alfjarlæg þar sem þeir "þóttust" vera fréttaþulir. Einkum var gaman að sjá Markús Örn í gamalkunnu hlutverki. Upptökum er nú lokið (loksins), þrátt fyrir það er lokavinnsla langt á veg komin - klipping, grafík og hljóðvinnsla hefur staðið yfir með hléum frá því í maí. Myndir verður frumsýnd þann 30. september næstkomandi. Mikil gleði ríkir nú í herbúðum okkar þar sem þetta er búið að vera sannkallað maraþon verkefni.

 


24. Maí 2004 Blindsker • Saga Bubba Morthens • Búið er að vinna svokallaðann TEASER fyrir heimildarmyndina Blindsker • Saga Bubba Morthens. Eftirvinnsla er í fullum gangi og vonumst við með að ljúka við fyrsta "klipp" í lok júní.

 


21. Maí 2004 Tökur • Upptökur á myndinni eru á lokastigi. Þetta hefur verið marg endurtekið á þessari síðu. Hinsvegar erum við sífellt að koma auga á ný og áhugaverð myndtækifæri til að krydda myndina með. Það má því segja að kryddfjöldi okkar samsvari góðum indverskum matrétt. Í dag voru tekin upp skraut atriði sem sýna æskuminningar Bubba. Það var Brynjar Morthens sem lék pabba sinn, Geir vinur hans var honum til halds og trausts sem aukaleikari.
sjá vinnumyndir

 


17. Maí 2004 Undirbúningur • Ragnar Santos myndatökumaður hefur farið mikinn í undirbúningi á tökum í heimildarmyndinni Blindsker • Saga Bubba Morthens. Um er að ræða skraut-upptökur sem fara fram á næstu dögum, þar sem sonur Bubba leikur pabba sinn. Ragnar hefur skátað stór-Reykjavíkursvæðið að hentugum stöðum sem enn bera einkenni eldri tíma. Einnig er á döfinni að taka upp Bubba á KR kappleik og kíkja í túr með honum þar sem goðið er byrjað að túra aftur.

 

12. Maí 2004 Lokarennsli • Það styttist óðum í að myndin um Bubba verði til. Allavega hélt ég það, er búin að vera skoða efnið grimmilega undanfarna tvo mánuði og hef komist að þeirri niðurstöðu að enn sé slatti eftir. Við höfum tekið upp gríðarlega mikið af efni, ofan á það bætist botnlaust magn af safnefni í formi viðtala, sjónvarpsþátta, blaðagreina, útvarpsviðtala o.s. frv. Ég, Óli Palli og Raggi erum að rembast við að láta þetta allt klikka saman. Við erum samt sem áður nokkuð bjartsýnir á að ljúka verkinu í júlí. Þessa dagana erum við að taka viðtöl við einstaklinga sem hafa sitthvað að segja um poppgoðið.

 

4. April 2004 Klippt í Varsjá • Ferskur ilmur af pólsku vori rennur um nasir mínar. Ég er staddur í úthverfi Varsjáborgar í Póllandi, dvel hér hjá vinum mínum og vinn að klippingu myndarinnar Blindsker • Saga Bubba Morthens. Ég var búin að grunnklippa myndina, þannig að núna er ég að strúktúra hana. Mjög gott að komast burtu frá skarkalanum heima. Upptökum er nú lokið á myndinni og klipping mun standa yfir fram í júlí.

 


15. nóvember 2003 Bubbi Morthens • Útgáfutónleikar Bubba Morthens á NASA. Fylgdumst með samræðu baksviðs áður en stigið var á stokk.

 


13. nóvember 2003 Bubbi Morthens • Bubbi spilar með hljómsveit og viðtal á Rás 2 við Ólaf Pál Gunnarsson.

14. okt 2003 Bubbi Morthens • Skrifstofa Bubba, viðtal.

 


6. okt 2003 Bubbi Morthens • Viðtal við Bubba Morthens á skrifstofu hans. Farið yfir víðan völl, þegar Bubbi fór til USA, tími hans með EGO og Das Kapital.



5. okt 2003 Blindsker
Bubbi Morthens
Hagkaup, Smáralind, Bubbi áritar nýju plötuna sína.



3. okt 2003
Bubbi Morthens • Ísbjörninn, Seltjarnarnes • Fimmtugsafmæli Tolla.

 


28. ágúst 2003 Blindsker Bubbi Morthens • Gnoðavogur 24, æskuslóðir Bubba. Talað var við eiganda íbúðarinnar þar sem Bubbi ólst upp og fengið leyfi til að heimsækja og skoða. Heimsóknin tók nokkuð á Bubba þar sem ljúfsárar minningar gerðu vart við sig. 

 


19. ágúst 2003 Bubbi Morthens • Farið var með Bubba í Kassagerðina í dag. Spígsporað var um gamla vinnustað Bubba, þar sem hann kynntist Utangarðsbræðrunum Pollock.

 

27. júlí 2003
Blindsker Bubbi Morthens • Friðþjófur Helgason myndatökumaður tekur upp veiði með Bubba í Hítará.

 

5. júní 2003 Blindsker Bubbi Morthens • Viðtal númer tvö var tekið upp í dag, í Þjóðmenningarhúsinu á Hverfisgötu. Ólafur Páll Gunnarsson, spyrill og handritshöfundur myndarinnar krufði til mergjar tímabil Bubba með Utangarðsmönnum. Bubbi fór hreinlega á kostum í herbergi Jóns Sigurðssonar.



16. maí 2003 Blindsker Bubbi Morthens • Tökur í Heimildarmyndina "Blindsker - Saga Bubba Morthens ganga vel og er á áætlun. Upptökutímabilið er rúmlega hálfnað og er áætlað að þeim ljúki að mestu í október á þessu ári. Bubbi mun að mestu eyða sumrinu spígsporandi um náttúru landsins. Að sjálfsögðu munum við fylgja honum þangað. Einnig eru áform um að Friðþjófur Helgason, einn af okkar fremstu náttúrulífs - myndatökumönnum muni fylgja poppgoðinu í einn veiðitúr.

 

 

-------------------------------------------------------------------
5. júní 03
Viðtal • Upptaka á langt viðtal við Bubba #2

14. maí 03
 Upptökur • Bubbi spilar f. forseta Íslands í Borgarleikhúsinu

13. maí 03 Upptökur • Bubbi hittir blaðamenn frá Belgíu (viðtal)

8. apríl 03 Viðtal • Upptaka á Hótel Borg, langt viðtal #1

19. feb 03 Bubbi og Botnleðja

18. feb 03 Laugardagskvöld m. Gísla Marteini (Viðt. Bubbi)

17. feb 03 Kaffi París, Bubbi með góðum vinum í morgunkaffi.

14. feb 03 Viðtal á Borginni • Fundur skífan

6. feb 03 Kaffi París, Bubbi með góðum vinum í morgunkaffi.

4. feb 03 Morgunleikfimi og Kaffi París, Bubbi með góðum vinum í morgunkaffi.

24. des 02 Litla Hraun. Árlegir tónleikar á Litla Hrauni, þar sem Bubbi tekur með sér góða gesti; Einar Már Guðmundsson, Einar Kárason, Móri og Hera.

23. des 02 Þorláksmessutónleikar Bubba.

22. nóv 02
Fyrirlestur í MR (Esso-túr) - Hádegisverður með vinum • Heimsókn á stöð 2.

16. nóv 02 Boxkeppni í Laugardalshöll. Box í fyrsta skipti á Íslandi, bein úts. Sýn.

 

BLINDSKER

TRAILER
Heimildamynd um Bubba Morthens.
Edduverðlaun "Besta Íslenska heimildamyndin" 2004. Útgáfa: Október 2004

 

 

Ólafur Páll Gunnarsson - Handritshöfundur • Það er freistandi að byrja þennan pistil á orðunum; Það er fyrir löngu orðið tímabært að gerð sé almennnileg heimildarmynd um tónlistarmanninn Bubba Morthens. Ég hef ákveðið að nota ekki þau orð heldur: Er ekki kominn tími til að einhver standi upp og segi það sem svo margir hafa hugsað árum saman, Gerum almennilega mynd um rokkarann, trúbadúrinn, veiði-brjálæðinginn, boxarann, dópistann, slagsmálahundinn, friðarsinnann, elskhugann, föðurinn, soninn, bróðurinn - manninn Bubba Morthens. . Lesa meira



Jónatan Garðarsson • Bubbi Morthens - Ágrip • Það hafa fáir tónlistarmenn lýst íslenskum veruleika í orðum og tónum af jafn miklu næmi og Bubbi Morthens. Hann hefur speglað veruleika þ úsunda Íslendinga, orðað hugsanir alþýðunnar, þrár og langanir. Sorg, reiði og vonbrigði til jafns við gleði og fögnuð íslensku þjóðarinnar; þjóðar sem stokkið hefur margar aldir fram í tímann á fáeinum áratugum. þessi hæfileiki Bubba til að setja sig í spor venjulegra Íslendinga er trúlega lykillinn að vinsældum hans, enda er Bubbi sjálfur venjulegur Íslendingur - eða hvað. þegar betur er að gáð er hann það sennilega ekki, því móðir hans var dönsk og faðir hans af norsku faðerni og íslenskur í móðurættina. Áður en ætterni Bubba og lífshlaup er rakið nánar er rétt að gera stuttlega grein fyrir stöðu hans sem tónlistarmanns. Lesa meira